
FÓSTBRÆÐUR FRESTA VORTÓNLEIKUM
Vegna ástandsins sem skapast hefur vegna útbreiðslu Covid-19-veirunnar og vegna samkomubanns ríkisstjórnarinnar hefur stjórn Karlakórsins Fóstbræðra ákveðið að fresta aðaltónleikum kórsins (Vortónleikum)sem fara áttu fram í Norðurljósasal Hörpu í apríl til hausts.
Þeir verða haldnir í Langholtskirkju dagana 6., 7.,8 og 10.október 2020.
Með kærri kveðju fyrir hönd stjórnar
Arinbjörn Vilhjálmsson formaður
